Kæru foreldrar og forráðamenn barna í Sandgerði, nú er einn mánuður liðinn frá því að síma dóttur minnar var stolið úr búningsklefa í Íþróttamiðstöðinni hér í Sandgerði.
Sá sem tók símann gæti hafa beðið vinkonu eða vin sinn um að geyma símann eða falið hann heima hjá sér.
Ég bið því alla foreldra um að spyrja börn sín hvort þau viti eitthvað um málið og einnig að taka eftir ef barnið er allt í einu komið með nýjann síma sem enginn kannast við.
Eins og kom fram áður er um að ræða nú mánaðar gamlann LG Viewty síma bleikann með frekar stórri myndavélalinsu á. Sjá hér. Ef þið verðið var við símann eða fréttið af honum bið ég ykkur um að hafa samband við mig í síma 849-0031 eða 421-6519. Ég hef kennisnúmer símans sem dugar til að athuga hvort um nákvæmlega þennan síma er að ræða.
Með von um góð viðbrögð
Alda Smith
